Prjónaferð
til Færeyja

Verð á mann frá

117.390 ISK

Hefur þú áhuga á prjónaskap, færeysku handverki og notalegri samveru? Þá er þessi einstaka prjónaferð með Norrönu eitthvað fyrir þig.

Fjölbreytt dagskrá um borð

Þann 15. október siglum við frá Seyðisfirði með stefnu á Færeyar. Um borð verður fjölbreytt dagskrá með prjónakaffi, skemmtun og lifandi tónlist, þar sem þú getur notið daganna með öðru prjónaáhugafólki. 

Prjónamenning og upplifanir í Tórshavn

Í Færeyjum gistir þú á hinu glæsilega Hótel Brandan í hjarta Tórshavnar, þar sem þú hefur góða aðstöðu til að slaka á og upplifa borgina. Dagskráin felur í sér spennandi heimsóknir til þekktra færeyskra ullar- og prjónavörurframleiðenda, meðal annars Navia, Guðrun & Guðrun, Öström og Ullvöruhúsið. Einnig verða nokkur prjónakaffi þar sem við leggjum áherslu á færeyskar prjónahefðir og ýmsar prjónaaðferðir. 

Einnig gefst tími til að upplifa Tórshavn, færeyska menningu, söfn, kaffihús og sögulega staði. Ferðinni lýkur með heimferð frá Tórshavn þann 20. október og við komum aftur til Seyðisfjarðar þann 21. október.

15.–21. október
Frá 117.390 ISK
Innifalið
  • Verð á mann þegar 2 ferðast saman
  • Sigling til Tórshavn og tilbaka
  • Klefi án glugga
  • Gistingu á 4* Hotel Brandan í 4 nætur
  • Morgunverður á hótelinu
Brottfarir
  • Brottför frá Íslandi til Færeyja:
    15. október
  • Brottför frá Færeyjum til Íslands:
    20. október

Fimmtudagur 15. október

20.00

Brottför frá Seyðisfirði.

21.00

Lifandi tónlist, samprjón 
og huggulegheit.

Föstudagur 16. október

07.00 – 10.00

Morgunverðarhlaðborð

10.00 – 12.00

Prjónakaffihús
Prjónahefðir í Færeyjum
Prjón á færeysku.

13.00 – 15.00

Prjónakaffihús
Gobelin-prjón
Kynning – Lára Vilbergsdóttir

16.00

Koma til Tórshavnar.

16.30

Innritun á Hotel Brandan í Tórshavn.

Hotel Brandan er staðsett nálægt miðbænum og því tilvalið að fara í göngutúr síðar um kvöldið og kynnast því sem borgin hefur upp á að bjóða.

21.00 -23.00

Prjónakaffihús á Hotel Brandan.

Herborg Torkilsdóttir tekur þátt með söng og tónlist ásamt „garni og tónum“.

Laugardagur 17. október

09.30 – 16.00

Heimsókn til Navia, þar sem við skoðum verslunina, fjárhúsið og framleiðsluna.

Síðar heimsækjum við Ribarhús í Fuglafirði. Þar er notalegt kaffihús með prjóna- og handverksvörum. Prjónakonur úr heimabyggð verða á staðnum.

20.00 – 23.00

Kristina Bærendsen flytur tónlist í anddyri hótelsins.

Sunnudagur 18. október

Frjáls dagur þar sem hægt er að heimsækja t.d.: 

Listasafn Færeyja – art.fo  
Norðurlandahúsið – nlh.fo  
Tjóðsavnið – tjodsavnid.fo

Leiðangur um gamla bæjarhlutann, Tinganes, Skansin og fjölmörg kaffihús og veitingastaðir.

Mánudagur 19. október

13.00

Við skiptum okkum í smærri hópa og heimsækjum Guðrun & Guðrun, tískuhönnuð og framleiðandi, Østrøm, tíska og hönnun, og Ullvøruhúsið, Sisha Brand og Steinum Design.

Þriðjudagur 20. október

13.00

Brottför frá Tórshavn.

15.00

Prjónakaffihús
Mosaik-prjón 
áframhald með Láru.

21.00

Lifandi tónlist-prjón og 
huggulegheit.

Miðvikudagur 21. október 

09.00

Koma til Seyðisfjarðar.

Bókaðu ferðina hér

icon-close